NEWS
As Iceland "celebrates" its first anniversary of THE BIG CRASH, HH opens an art exhibition titled "The Icelandic Expansion 2009" - a sarcastic title, since "The Icelandic Expansion" (Icelandic business-viking-raids on foreign shores) came to a shrieking halt one year ago. The show features a series of photographs shot last January in an unnamed country in southern Africa, showing a once invincible, now desperate Icelandic "business-viking" wandering around the poor third world suburbs, sleeping on the beach and begging in the street. Show is at The Contemporary Art Gallery, Skólavörðustígur 3, 101 Reykjavik, 7-20 October 2009.
HH was invited to be among the speakers at the opening ceremony of the art festival in Bergen Norway last May, a black tie event held at the big and festive Grieghallen, with the king and queen of Norway up front. HH's speech focused on the current crisis in Iceland and the relations between the two countries. It was recorded by Norwegian Televison, NRK, and is now available on youtube.com.
ART
30. nóvember 2008 | 14:13
Grýla
Grýla bíður bakvið horn
á brókarsíðum frakka.
Hún er gömul galdranorn
sem gleypir vonda krakka.
Gnístir saman tönnum tveim,
með tungulöngu slefi
vætir hár á vörtum þeim
sem vaxa á hennar nefi.
Eyrnalöng með loðin brjóst
og ljóta fúaleggi.
Gerir myrkrið morgunljóst
mygluskán í skeggi.
Í bensínstybbu bíður hún
í bílastæðahúsum
með úldið glott og ygglibrún,
eyrun full af músum.
Og komi hún auga á krakkaskinn
sem kornabarnið hræðir
hún pínir litla pottorminn
í poka sinn og snæðir.
Því matvönd er kerlingarálftin ill
átján hundruð vetra.
Í matinn aðeins vont hún vill.
Því verra, þeim mun betra!
Svo ef þú ert góður eða góð
þú undan Grýlu sleppur.
Ef ekki, þú endar á hennar hlóð
sem heitur sláturkeppur.
Þann neysluóða nöldursegg
sem nýtur þess að væla
og pantar á jólum páskaegg
á pönnu mun hún spæla.
En næpuhvítan nammigrís
í nestisboxið setur
og þá sem borða bara ís
hún bryður líkt og hnetur.
Í skammdeginu skjót sem ör
hún skýst á milli bíla.
Þar sem spenna spillir för
spennir beltið Grýla.
Og fim sem köttur kerling er,
í kveiktum jólaljósum
á milli húsa hún sveiflar sér
og safnar frekjudósum.
Því frekjan á sinn fastagest
í formóður sinni, Grýlu.
En þó finnst henni bragðast best
börn sem eru í fýlu.
Við skulum því ekki hafa hátt
og hátíðlega lofa
foreldrum okkar friði og sátt
og fara snemma að sofa.
Og ef við verðum áfram góð
eftir næturhvílu
má sjá hvar fennir um foldarslóð
í fýlusporin Grýlu.